Lífeyrismál
Hvernig og hvenær er hægt að sækja um ellilífeyri?
Ekki er neinn ákveðinn ellilífeyrisaldur í almenna lífeyristryggingakerfinu í Svíþjóð. Hægt er að taka út lífeyrinn frá 61 árs aldri og leyfilegt er að bíða eins lengi og einstaklingurinn óskar sér. Mögulegt er að taka út ellilífeyri meðfram starfi og á sama tíma afla sér meiri lífeyrisréttinda.
Lágmarkslífeyrinn er í fyrsta lagi hægt að taka út við 65 ára aldur. Þú verður að senda inn umsókn þegar komið er að því að taka út lífeyrinn. Ef þú býrð í Svíþjóð er heppilegt að leggja inn umsókn til Försäkringskassan, 2-3 mánuðum áður en þú vilt fá fyrstu greiðsluna. Ekki er hægt að fá lífeyrinn greiddan aftur í tímann vegna tímabila áður en umsókn var lögð fram.