Lífeyrismál
Hvernig er ellilífeyririnn reiknaður?
Grunnhugsunin með lífeyriskerfinu er sú að allt lífið sé talið með. Kerfið er fjármagnað með gjöldum. Þú og vinnuveitandinn þinn greiðið gjald í almenna ellilífeyriskerfið. Samanlögð upphæð er 18,5 prósent af þeim tekjum sem lífeyrisgreiðslurnar eru reiknaðar út frá. 16 prósent renna til tekjulífeyrisins og 2,5 prósent í sérlífeyrinn. Þessi 18,5 prósent mynda hin svo kölluðu lífeyrisréttindi.
Tekjurnar sem lífeyrisgreiðslurnar eru reiknaðar út frá eru eftirfarandi:
• laun
• veikinda- og endurhæfingargreiðslur
• foreldraorlofsgreiðslur
• atvinnuleysisbætur
• ríkisstyrkur til atvinnulausra sem hefja eigin rekstur
• ýmsir námsstyrkir
• sjúkra- eða ástundunarbætur