Lífeyrismál
Hvernig er ellilífeyrinum stjórnað?
Ellilífeyririnn þinn er lagður inn á reikning, einn reikning fyrir tekjulífeyrinn og annan fyrir sérlífeyrinn.
Lífeyrisréttindin þín vegna tekjulífeyris eru geymd á ímynduðum lífeyrisreikningi. Virði þessa reiknings byggist á uppsöfnuðum lífeyrisréttindum og vaxtakjörum. Vextirnir ráðast af launaþróuninni í Svíþjóð.
Sérlífeyrisreikningnum er stjórnað af PPM, Premiepensionsmyndigheten. Peningarnir sem fara í sérlífeyrinn eru settir í hlutabréfasjóði sem þú getur valið sjálf(ur). Því meira sem þú vinnur þér inn, því meiri peninga geturðu notað í fjárfestingar. Gengi þessara sjóða ræður síðan hversu mikinn sérlífeyri þú færð að lokum greiddan. Ef þú ert ekki ánægður með val á fjárfestingum, getur þú hvenær sem er fært á milli sjóða, þér að kostnaðarlausu.