Heilsa og sjúkdómar

Bætur vegna veikinda

Launað veikindaleyfi og veikindabætur

Ef einstaklingur hefur unnið hjá sænskum vinnuveitanda í a.m.k. einn mánuð eða er búinn að vinna samfleytt í 14 daga á hann rétt á launuðu veikindaleyfi frá vinnuveitanda fyrstu 14 daga veikindatímabilsins. Fyrsti dagurinn er biðtími og þá eru engin laun greidd.

Hverjar eru greiðslurnar?

Launin í veikindaleyfinu eru 80 prósent af venjulegum launum fyrir dag 2–14. Ef starfsmaðurinn er veikur í meira en tvær vikur þarf atvinnurekandinn ekki lengur að greiða launin. Í stað þess getur starfsmaðurinn sótt um veikindabætur hjá Försäkringskassan. Atvinnuveitandinn sendir þá tilkynningu til þeirra.

Hverjar eru reglurnar?

Försäkringskassan metur hvort starfsmaðurinn eigi rétt á veikindabótum. Mismunandi reglur eru fyrir mat á veikindabótum fyrir starfsmenn og fólk í eigin atvinnurekstri. Veikindabætur eru reiknuð fyrir hverja klukkustund, dag eða almanaksdag, samkvæmt því hvernig starfinu er háttað. Hægt er að fá fjórðung, hálfan, eða tvo þriðju hluta veikindabóta, allt eftir því hversu mikla vinnu starfsmaðurinn missir úr. Försäkringskassan metur réttinn til veikindabóta og dæmir um hvort starfsmaðurinn geti sinnt starfinu að fullu eða að hluta til þrátt fyrir veikindin. Til þess að staðfesta takmarkaða vinnugetu þarf starfsmaðurinn að skila læknisvottorði til Försäkringskassan ekki seinna en á áttunda degi veikindatímabilsins.

Sjúkra- og ástundunarbætur

Försäkringskassan getur breytt veikindabótum í sjúkra- eða ástundunarbætur. Þetta gerist ef Försäkringskassan metur það sem svo að vinnugeta sé skert a.m.k. að því sem nemur 25% vegna veikinda. Vinnugetan þarf einnig að teljast skert a.m.k. eitt ár fram í tímann. Allir möguleikar á endurhæfingu skulu hafa verið kannaðir. Sjúkrabætur eru greiddar einstaklingum frá 30 til 64 ára aldurs. Ástundunarbætur eru greiddar einstaklingum á aldrinum 19 – 29 ára.

Hverjar eru greiðslurnar?

Bæði sjúkra- og ástundunarbæturnar eru  tekjutengdar og byggjast á fyrri tekjum.  Sá sem ekki hefur verið með neinar tekjur eða mjög lágar getur fengið lágmarksbætur.

Vinnuslys

Vinnuslysatryggingin nær til allra þeirra sem eru í launaðri vinnu; starfsmanna, verktaka og fólks í eigin atvinnurekstri. Sá sem slasast á vinnustað eða á leið í eða úr vinnu getur fengið greiðslur frá vinnuslysatryggingum. Greiðslurnar geta verið veikindabætur, lífeyrir eða bætur vegna umönnunarkostnaðar. Jafnvel eftirlifandi aðstandendur geta fengið bætur.

Heilsugæsla og tannvernd

Ef þú ert skráður með fasta búsetu í Svíþjóð eða starfar þar sem norrænn ríkisborgari tekur almenna heilbrigðiskerfið til þín.  Að öllu jöfn greiðir sjúklingur gjald við hverja komu. Heilbrigðiskerfinu er stjórnað af svæðisbundum landsþingum. Tannvernd í Svíþjóð er ókeypis fram að 19 ára aldri. Eftir það er einstaklingurinn með tannverndartryggingu sem felur í sér að hann þarf ekki að greiða allan kostnað fyrir tannvernd. Hann greiðir hlutfall sjúklings og Försäkringskassan sér um það sem eftir er.

Greiðslur vegna sjúkratrygginga á Norðurlöndunum

Hér getur þú fundið yfirlit yfir greiðslur vegna sjúkratrygginga á Norðurlöndunum.

Lesið meira um greiðslur vegna sjúkratrygginga á Norðurlöndunum