Atvinnuleysi

Atvinnuleysistryggingar

Hvernig virka sænsku atvinnuleysistryggingarnar?

Sænsku atvinnuleysistryggingarnar gera fólki kleift að laga sig að nýjum aðstæðum. Til þess að eiga rétt á bótum þarft þú að sýna fram á að þú sért að leita þér að annarri vinnu og að þú sért reiðubúin(n) að sækja vinnu fjarri heimili þínu, flytja eða sækja endurmenntunarnámskeið.

Hvernig eru atvinnuleysistryggingarnar uppbyggðar?

Atvinnuleysistryggingin greiðist þeim sem uppfylla ákveðin skilyrði. Tryggingin nær til allra og er tvíþætt: Annars vegar almenn grunntrygging (grunnbætur) og hins vegar valfrjáls tekjumissistrygging (tekjutengdar bætur).

Hver eru skilyrðin?

Til þess að eiga rétt á grunnbótum eru grunnskilyrðin meðal annars þau að umsækjandinn sé atvinnulaus að fullu eða að hluta og að hann sé fær um að vinna að minnsta kosti í þrjá tíma á dag. Auk þessa verður umsækjandinn að vera reiðubúinn til þess að þiggja atvinnutilboð og vera á skrá hjá opinberri atvinnumiðlun.

Til þess að eiga rétt á tekjutengdum bótum verður umsækjandinn að uppfylla þrjú skilyrði:
- grunnskilyrðin
- að hann hafi á síðustu 12 mánuðunum fyrir atvinnumissinn, unnið a.m.k. í sex mánuði ekki færri en 80 tíma í hverjum mánuði
- að hann hafi verið skráður í atvinnuleysissjóð samfleytt í a.m.k. 12 mánuði (félagsskilyrði)

Upplýsingar um allar reglur og skilyrði má finna á www.arbetsformedlingen.se

Hvernig verð ég félagi í atvinnuleysistryggingarsjóði?

Þú getur orðið félagi í atvinnuleysistryggingarsjóði ef þú hefur á fimm vikna tímabili unnið a.m.k. fjórar vikur og ekki minna en 17 tíma í viku að meðaltali. Félagar verða að gegna áfram sama starfshlutfalli þegar þeir sækja um aðild.

Hve lengi get ég verið á atvinnuleysisbótum?

Þeir sem eiga rétt á atvinnuleysisbótum fá greiðslur frá atvinnuleysissjóði í 300 daga. Foreldrar sem eru með börn yngri en 18 ára geta átt rétt á 150 dögum í viðbót. Áður en bótagreiðslur hefjast koma fyrst 5 bótalausir dagar. Í þeim tilfellum sem þú segir sjálf(ur) starfi þínu lausu gilda aðrar reglur um atvinnuleysisbætur.

Hversu háar eru atvinnuleysisbæturnar?

Hjá þeim sem hafa verið í fullri vinnu nemur grunnupphæðin 320 sænskum krónum á dag, án tillits til fyrri tekna. Ef þú hefur verið í hlutastarfi lækkar grunnupphæðin í samræmi við starfshlutfall. 

Ef þú átt rétt á tekjutengdum bótum, nemur upphæðin fyrstu 200 dagana 80% af fyrri tekjum  (hámark 680 sænskar krónur fyrir hvern bótadag). Eftir það nema bæturnar 70% af fyrri tekjum (mest 680 sænskar krónur fyrir hvern bótadag).

Frekari upplýsingar um sænsku atvinnuleysistryggingarnar, um Norðurlandasamninginn  og um reglur ESB á sviði atvinnuleysistrygginga má finna á vefsíðunum www.arbetsformedlingen.se, www.iaf.se og www.samorg.org

Greiðslur vegna atvinnuleysis á Norðurlöndunum

Hér getur þú fundið yfirlit yfir greiðslur vegna atvinnuleysis á Norðurlöndunum.

Lesið meira um greiðslur vegna atvinnuleysis á Norðurlöndunum