Lífeyrismál
Lífeyrir í Noregi
Lífeyrir í Noregi
Nýtt lífeyriskerfi er í vinnslu. Nánari upplýsingar á www.pensjonsreform.no
Núverandi lífeyriskerfi í Noreg
Ellilífeyrir
Veittur frá 67 ára aldri. Ellilífeyrir almannatrygginganna samanstendur bæði af grunnlífeyri og viðbótarlífeyri. Þeir sem hafa lítinn eða engan viðbótarlífeyri fá uppbót á lífeyri.
Grunnlífeyrir
Er reiknaður út frá þeim tíma sem viðkomandi hefur notið almannatrygginga í Noregi á tímabilinu frá 16 ára aldri og út 66. aldursárið. Það nefnist tryggingartímabil. 40 ára tryggingartímabil veitir fullan grunnlífeyrir.
Viðbótarlífeyrir
Er reiknaður út frá fjölda ára sem þú hefur haft tekjur (tekjur sem telja til lífeyris) í Noregi (lífeyrisstig) og eftir því hversu háar tekjurnar hafa verið (lífeyrisupphæð). Hvert lífeyrisstig í Noregi er reiknað sem eins árs tryggingartími, sjá „Grunnlífeyrir“.
Uppbót vegna framfærslu
Hægt er að veita uppbót fyrir maka og fyrir börn á framfæri. Þörfin fyrir þessum viðbótargreiðslum er metin, þ.e.a.s. með tilliti til tekna.
Nánari upplýsingar á www.nav.no.
Önnur lífeyriskerf
Flestir launamenn í Noregi tengjast lífeyriskerfi fyrir starfsmenn sem veitir ellilífeyri. Þú færð nánari upplýsingar um þetta hjá vinnuveitanda þínum.
Örorkulífeyrir
Einstaklingar sem hafa uppsöfnuð lífeyrisréttindi í Noregi, geta átt rétt á örorkulífeyri frá almannatryggingum, ef að tekjumöguleikar skerðast a.m.k. um 50 prósent vegna langvarandi veikinda, slyss eða meiðsla eða meins. Ef einstaklingurinn hefur verið í vinnu, verður örorkulífeyrir fyrst mögulegur eftir eins árs veikindaleyfi og eftir að viðkomandi hefur fengið tilheyrandi læknismeðferð og hugsanlega þjálfun (endurhæfingu) í þeim tilgangi að bæta tekjumöguleikana.
Eftirlifendalífeyrir
Ekkja eða ekkill, sem hefur verið gift í a.m.k. 5 ár eða á barn með hinum látna, getur fengið eftirlifendalífeyri, sem er reiknaður út frá uppsöfnuðum réttindum hins látna í gegnum almannatryggingarnar í Noregi
Þær tekjur sem eftirlifandi hefur eða má ætla að hann geti haft eru dregnar frá lífeyrisupphæðinni. Frádrátturinn er 40 prósent af tekjunum umfram ákveðna fría upphæð.
Eftirlifendalífeyrir til ekkju eða ekkils er ekki tímabundinn, en fellur úr gildi ef hinn eftirlifandi gengur í hjónaband á ný.