Heilsa og sjúkdómar
Heilsa og sjúkdómar
Meðferð hjá lækni, á sjúkrahúsi og lífsnauðsynleg lyf
Greiðist af almannatryggingunum, en þú verður að greiða hlutfall sjúklings.
Ef þú nýtur almannatrygginga, áttu rétt á heimilislækni. Lesið meira um þetta á www.nav.no
Tannlæknir
Almannatryggingarnar greiða ekki útgjöld vegna hefðbundinnar meðferðar fullorðinna hjá tannlækni. Fyrir börn er boðið upp á skólatannlækna að kostnaðarlausu.
Sjúkragreiðslur
Þú átt rétt á sjúkragreiðslum, sem byggja á laununum þínum, ef þú veikist eða slasast. Þú færð launin bætt í heild upp að vissu marki. Þess er krafist að þú hafir verið í vinnu í a.m.k. 4 vikur. Til þess að uppfylla þetta skilyrði, má telja með vinnu í öðru norrænu landi. Sjúkragreiðslurnar er hægt að veita í eitt ár, en þess er krafist að þú reynir, eins fljótt og mögulegt er, að taka þátt í atvinnutengdum störfum. Lesið meira á www.nav.no
Endurhæfingargreiðslur
Greiðast eftir að sjúkragreiðslum lýkur en þú ert áfram í virkri meðferð með möguleika á að bæta vinnufærni. Er yfirleitt ekki veitt lengur en í eitt ár. Greiðslan er 66 prósent af fyrri launum upp að vissu marki. Lesið meira á www.nav.no
Þjálfunargreiðslur
Veitt til atvinnutengdrar endurhæfingar, með það fyrir augum að útvega nýtt starf eða halda fyrra starfi. Greiðslan er 66 prósent af fyrri launum upp að vissu marki. Lesið meira á www.nav.no
Tímabundinn örorkustyrkur
Veitt sem örorkustyrkur þegar það er möguleiki á því að hægt verið að snúa aftur til vinnu. Atvinnu- og tryggingastofnun (NAV) veitir þér eftirfylgni með það fyrir augum að komast að því hvað sé hægt að gera til þess að bæta vinnufærni þína. Greiðslan er 66 prósent af fyrri launum upp að vissu marki og er veitt í eitt til fjögur ár í senn. Lesið meira á www.nav.no
Örorkulífeyrir
(Hlekkur á „Örorkulífeyrir“ í staðreyndablaðinu „Ellilífeyrir í Noregi“).
Útfararstyrkur
Veittur til þess að greiða fyrir útfararkostnað að sannreyndri fjárhagslegri þörf. Fyrir börn undir 18 ára aldri er ekki þörf að sannreyna þörfina. Lesið meira á www.nav.no