Almannatryggingar í Noregi

Þegar þú býrð í Noregi

Meginreglan er að allir sem eru búsettir í Noregi eru í almannatryggingum (félagslegar tryggingar) í Noregi. Þetta gildir samt sem áður ekki ef þú starfar í öðru landi. Þá nýtur þú almannatrygginga í starfslandinu.
UNDANTEKNINGAR: Þegar vinnuveitandi í Noregi sendir þig í tímabundna vinnu í öðru landi, heldur þú áfram að vera í almannatryggingum  í Noregi.

Þegar þú starfar í Noregi

Meginreglan er sú að allir sem starfa í Noregi eru í almannatryggingum (félagslegar tryggingar) í Noregi.
UNDANTEKNING: Ef vinnuveitandi í öðru landi sendir þig í tímabundna vinnu í Noregi, ert þú það sem kallast  „útsendur starfsmaður“ og nýtur áfram almannatrygginga í því landi sem þú ert útsendur frá.

Almannatryggingar í Noregi