Heilsa og sjúkdómar

Sjúkratryggingar

Einstaklingar þurfa að hafa verið búsettir á Íslandi í að minnsta kosti sex mánuði, talið frá skráningu lögheimilis í Þjóðskrá, til þess að verða sjúkratryggðir hjá Sjúkratryggingum Íslands

Meðferð hjá lækni, lyf og sjúkrahúsdvöl

Sjúkratryggðum er tryggð endurgjaldslaus dvöl að læknisráði á sjúkrahúsum eða öðrum heilbrigðisstofnunum. Einnig greiða Sjúkratryggingar Íslands að fullu eða að hluta  læknishjálp utan sjúkrahúsa, lyf, hjálpartæki og  þjálfun auk margvíslegrar annarrar aðstoðar.  Í flestum tilvikum greiðir sjúklingurinn ákveðið gjald sjálfur fyrir aðstoðina.

Tannlæknir

Sjúkratryggingar Íslands taka engan þátt í tannlæknaþjónustu fyrir fullorðna, nema í undantekningartilvikum, t.d. vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða að hluta  tannlæknakostnað fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri og  fyrir  elli-, og örorkulífeyrisþega skv. gjaldskrá ráðherra.

Gjaldskrá starfandi tannlækna er frjáls. Ef gjaldskrá tannlæknis er hærri en gjaldskrá ráðherra, greiðir einstaklingur mismuninn.

Þjálfun og endurhæfing

Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði sjúkratryggðra við sjúkra-, iðju- og talþjálfun eftir ákveðnum reglum.  Þjálfunarbeiðni frá lækni þarf að liggja fyrir áður en þjálfun hefst.

Sjúkradagpeningar

Einstaklingar sem eru óvinnufærir vegna veikinda geta átt rétt á sjúkradagpeningum  frá Sjúkratryggingum Íslands þegar réttur til veikindalauna skv. kjarasamningum er fallinn niður, en þó að hámarki í 52 vikur. Fjárhæðin er hin sama fyrir alla.

Slysatryggingar almannatrygginga

Slys við vinnu, við íþróttaiðkun hjá viðurkenndu íþróttafélagi og við björgunarstörf eru yfirleitt bótaskyld hjá Sjúkratryggingum Íslands enda séu ákveðin skilyrði uppfyllt. Bætur eru slysadagpeningar þegar réttur til launa skv. kjarasamningum er fallinn niður,  örorku- og dánarbætur, auk endurgreiðslu á útlögðum sjúkrakostnaði.

Greiðslur vegna sjúkratrygginga á Norðurlöndunum

Hér getur þú fundið yfirlit yfir greiðslur vegna sjúkratrygginga á Norðurlöndunum.

Lesið meira um greiðslur vegna sjúkratrygginga á Norðurlöndunum