Börn og fjölskyldur
Greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna
Greiðslunum er ætlað að koma til mótvægis við tekjutap foreldra vegna umönnunar veikra barna. Um er að ræða þrenns konar greiðslur, þ.e.a.s til foreldra sem eru á vinnumarkaði, í námi eða grunngreiðslur til foreldra sem hvorki eru í námi eða vinnu.
Um sameiginlegan rétt foreldra er að ræða. Foreldri skal fara með forsjá barns eða hafa sameiginlega forsjá með hinu foreldrinu. Foreldrar ráða hvernig þeir skipta réttinum milli sín enda fullnægi þeir báðir skilyrðunum, en þeir eiga ekki rétt á greiðslum á sama tíma fyrir sama tímabil. Undantekning er þó veitt þegar barn nýtur líknandi meðferðar og foreldrar hafa ekki nýtt sér rétt sinn að fullu. Foreldrar og barn skulu eiga lögheimili á Íslandi þann tíma sem greiðslur eru inntar af hendi. Foreldri þarf að leggja niður störf til að annast barnið meðan greiðslur standa yfir í a.m.k. 14 virka daga.
Greiðslur til foreldra á vinnumarkaði
Auk ofangreinds eru helstu skilyrði m.a. að foreldri hafi verið á íslenskum vinnumarkaði í a.m.k. 6 mánuði samfellt áður en barn greinist og í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði. Greiðslur til foreldra á vinnumarkaði nema 80% af meðaltali heildarlauna upp að ákveðnu hámarki og skal miða við tólf mánaða tímabil sem hefst tveimur mánuðum áður en barn greindist. Greiðslur til foreldris geta hafist þegar fullar launagreiðslur falla niður og staðið í allt að 6 mánuði.
Greiðslur til foreldra í námi
Auk ofangreinds eru helstu skilyrði m.a. að foreldri hafi verið í 75-100% námi í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum áður en barnið greindist, foreldri geri hlé á námi í a.m.k eina önn í viðkomandi skóla til að annast barnið og foreldri hafi átt lögheimili á Íslandi síðustu tólf mánuði áður en barnið greindist. Greiðslur til foreldra í námi eru ákveðin fjárhæð á mánuði og reiknast frá og með þeim degi er fjórtán virkir dagar eru liðnir frá því að barnið greindist. Greiðslur geta staðið í allt að 3 mánuði og eru inntar af hendi eftir á þegar önn í viðkomandi skóla er lokið og staðfest er með vottorði að hlé hafi verið gert á námi
Almenn fjárhagsaðstoð – grunngreiðslur
Foreldrar utan vinnumarkaðar eða foreldrar sem fullnýtt hafa rétt sinn sem foreldri á vinnumarkaði eða sem námsmaður geta átt rétt á grunngreiðslum. Um er að ræða sameiginlegan rétt foreldra til allt að 18 ár aldurs barns. Skilyrði fyrir greiðslum eru m.a. að foreldri geti hvorki sinnt vinnu né námi. Greiðslurnar eru ákveðin fjárhæð á mánuði sem skerðast hafi foreldri tekjur og aðrar greiðslur.