Börn og fjölskyldur
Fæðingar- og foreldraorlofsgreiðslur
Greiðslur vegna fæðingar eru fæðingarorlofsgreiðslur og fæðingarstyrkur.
Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum á hvort foreldri um sig sjálfstæðan og óframseljanlegan rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrks í allt að þrjá mánuði. Foreldrar eiga þar að auki sameiginlegan rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrks í þrjá mánuði til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða þeir skipt á milli sín. Foreldrar geta fengið greiðslur á sama tíma eða mismunandi tímabilum.
Skilyrði
Foreldrar sem hafa verið samfellt í 6 mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns eða þann tíma þegar barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur ávinna sér rétt til fæðingarorlofsgreiðslna. Þó skal taka til greina starfstíma foreldris í öðrum EES-ríkjum hafi það starfað á innlendum vinnumarkaði a.m.k. síðasta mánuðinn á 6 mánaða tímabilinu. Starfshlutfall í hverjum mánuði þarf að vera a.m.k 25%.
Rétt til fæðingarstyrks hafa foreldrar sem eru utan vinnumarkaðar (í minna en 25% starfi), þeir sem eru á innlendum vinnumarkaði en uppfylla ekki skilyrði fyrir fæðingarorlofsgreiðslum og námsmenn í fullu námi. Skilyrði fyrir því að eiga rétt til fæðingarstyrks er að eiga lögheimili á Íslandi við fæðingu barns og hafa átt það síðustu 12 mánuði þar á undan.
Skilyrði greiðslna er að störf séu lögð niður á meðan greiðslur vara. Réttur til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks fellur niður við 36 mánaða aldur barns en réttur til fæðngarstyrks fellur niður við 18 mánaða aldur barns.
Greiðslur
Mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns nemur 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram er og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur 6 mánuðum fyrir fæðingardag barns en þó aldrei hærra en upp að ákveðnu þaki. Í tilviki sjálfstætt starfandi skal miða við tekjuárið á undar fæðingarári barns en að öðru leyti gilda sömu reglur fyrir þá og um starfsmenn. Fæðingarstyrkur til foreldra utan vinnumarkaðar er ákveðin fjárhæð á mánuði.