Börn og fjölskyldur

Aðstoð til einstæðra foreldra

Mæðralaun/feðralaun

Þessar greiðslur er heimilt að greiða einstæðum foreldrum sem eru búsett á Íslandi og hafa á framfæri tvö börn sín eða fleiri undir 18 ára aldri.

Fyrirframgreiðsla meðlags

Tryggingastofnun getur haft milligöngu um greiðslu meðlaga, en meðlög teljast ekki til bóta almannatrygginga.

Foreldri sem fær úrskurð eða staðfest samkomulag um meðlag hjá sýslumanni getur snúið sér Tryggingastofnunar og óskað eftir því að fá meðlagið greitt hjá Tryggingastofnun.  Innheimtustofnun sveitafélaga sér svo um að innheimta greiðslur hjá meðlagsgreiðanda og endurgreiðir Tryggingastofnun. Upphæð meðlags er hin sama og upphæð barnalífeyris.  Þó að úrskurður kveði á um hærra meðlag en barnalífeyrir er á hverjum tíma þá greiðir Tryggingastofnun aldrei hærra en einfalt meðlag. Mismun þarf móttakandi sjálfur að innheimta hjá meðlagsgreiðanda.