Atvinnuleysi

Atvinnuleysistryggingar

Réttur launafólks og sjálfstætt starfandi einstaklinga til atvinnuleysisbóta
Launamenn og sjálfstætt starfandi einstaklingar á aldrinum 16-70 ára eiga rétt á atvinnuleysisbótum að því tilskyldu að þeir hafi áunnið sér tryggingarétt og séu:

  • Atvinnulausir
  • Búsettir á Íslandi
  • Virkir í atvinnuleit
  • Vinnufærir og reiðubúnir til að ráða sig til allra almennra starfa
  • Reiðubúnir til að taka starfi hvar sem er á Íslandi

Bótaréttur

  • Bótaréttur miðast við vinnu og starfshlutfall sl. 12 mánuði.
  • Atvinnuleysisbætur eru tekjutengdar í þrjá mánuði eftir 10 daga frá umsókn.  Miðað er við 70% af  meðaltali heildarlauna sex mánaða tímabils, sem hefst tveimur mánuðum fyrir umsókn, upp að ákveðnu hámarki.  Eftir þrjá mánuði greiðast grunnatvinnuleysisbætur.
  • Fullar grunnatvinnuleysisbætur nema ákveðinni fjárhæð á dag.
  • Lágmarksbótaréttur er 25% sem miðast við fullt starf í a.m.k. þrjá mánuði. Lágmarksréttur til atvinnuleysistrygginga veitir rétt til ¼ hluta grunnatvinnuleysisbóta.
  • Sjálfstætt starfandi einstaklingar sem teljast ársmenn, þ.e. greiða staðgreiðslu og tryggingagjald einu sinni á ári, eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum.
  • Atvinnuleysisbætur eru greiddar fyrir alla daga, nema laugardaga og sunnudaga.
  • Atvinnuleitandi sem hefur áunnið sér lágmarksbótarétt og hefur að auki lokið námi sem hefur staðið yfir í a.m.k. sex mánuði fær námið metið sem 13 vikna vinnuframlag.  Hluti náms og námskeið veita ekki aukinn bótarétt.
  • Að uppfylltum ákveðnum skilyrðum skerðist bótaréttur ekki þó að atvinnuleitandi hverfi af vinnumarkaði í allt að 24 mánuði.  Námsmenn geta geymt rétt sinn í allt að 36 mánuði.
  • Greitt er með hverju barni undir 18 ára aldri, óháð bótahlutfalli.
  • Atvinnuleysisbætur eru ekki greiddar í eigin veikindum og ekki vegna veikinda barna.
  • Bótaréttur getur ekki orðið hærri en sem nemur því starfshlutfalli sem atvinnuleitandi er tilbúinn að ráða sig í

Ákvörðun um atvinnuleysisbætur

Vinnumálastofnun ákvarðar rétt til atvinnuleysisbóta og missi bóta. Greitt er fyrsta virkan dag mánaðar fyrir atvinnulausa daga á tímabilinu frá 19. dags síðasta mánaðar til 20. dags mánaðar þar á undan.

Greiðslur vegna atvinnuleysis á Norðurlöndunum

Hér getur þú fundið yfirlit yfir greiðslur vegna atvinnuleysis á Norðurlöndunum.

Lesið meira um greiðslur vegna atvinnuleysis á Norðurlöndunum