Lífeyrismál

Rétturinn til ellilífeyris er skilyrtur því að þú hafir haft a.m.k. þriggja ára fasta búsetu í ríkjasambandinu (Grænlandi, Danmörku, Færeyjum) á tímabilinu frá því þú varðst 15 ára og þar til þú verður 65 ára.

Þú þarft að vinna eða búa og eiga lögheimili á Grænlandi.

Við starfslok eða flutning starfs til annars lands eða flutning frá Grænlandi, heldur þú þeim lífeyrisréttindum sem þú hefur áunnið þér á Grænlandi.
Það eru sérstakar reglur innan ríkjasambandsins.

Ellilífeyrir samanstendur af grunnellilífeyri og 3 viðbótarframlögum sem ekki greiðast til ellilífeyrisþega sem hafa fasta búsetu utan Grænlands.

Réttur til fulls ellilífeyris er skilyrtur af a.m.k. 40 ára fastri búsetu í ríkjasambandinu á milli 15 og 65 ára aldurs. Við styttri búsetutímabil er lífeyrinn skertur tilsvarandi. Þegar einstaklingur sem nýtur örorkulífeyris er á elliheimili, greiðist ellilífeyrinn í sömu fertugustuhlutum og örorkulifeyrinn var greiddur fram að því.

Ellilífeyrinn er tekjutengdur.

Lífeyrisaldur og umsókn um ellilífeyri

Aldursmörkin fyrir ellilífeyri eru 64 ár á árinu 2009 og rfá 1. janúar 2010 eru aldursmörkin 65 ár.

Ef þú býrð á Grænlandi leggur þú inn umsókn í því sveitarfélagi sem þú býrð í. Ef þú býrð í Pituffik á Grænlandi áttu að skila umsókn til fjölskyldu- og heilbrigðisstofnunarinnar. Ef þú býrð á Grænlandi og sækir um lífeyri frá öðru Norðurlandi áttu að skila umsókn til fjölskyldu- og heilbrigðisstofnunarinnar.

Örorkulifeyrir

Rétturinn til örorkulífeyris er skilyrtur því að þú hafir haft a.m.k. þriggja ára fasta búsetu í ríkjasambandinu frá því þú varðst 15 ára og þar til þú varðst 65 ára.

Örorkulífeyrir er tekjutengdur. Þó er greidd lágmarksupphæð, óháð því hversu miklar skattskyldar tekjur eru.

Örorkulífeyrir samanstendur af lífeyrisgreiðslum, auk 2 viðbótargreiðslna sem ekki greiðast til einstaklinga sem hafa búsetu utan Grænlands.

Rétturinn til fulls örorkulífeyris er skilyrtur því að búsetutími í ríkjasambandinu sé a.m.k. 5/6 af búsetutímanum frá 15 ára aldri til þess tíma þegar greiðsla hefst.

Við styttri búsetutíma minnkar örorkulífeyrir hlutfallslega.

Aldursmörk og umsókn um örorkulífeyri

Örorkulífeyri má greiða einstaklingum sem eru á aldursbilinu frá 18 ára aldri og til aldursmarka ellilífeyrisrétts.

Þó má greiða einstaklingum undir 18 ára aldri örorkulífeyri, ef umsækjandi hefur framfærsluskyldur gagnvart maka, skráðum sambýlisaðila eða barni.

Örorkulífeyri má úthluta einstaklingum með varandlega skerta starfshæfni af líkamlegum, andlegum eða félagslegum ástæðum. Áður en örorkulífeyri er úthlutað þarf sveitarfélagið að hafa reynt starfsendurhæfingu gagnvart viðkomandi.

Ef þú býrð á Grænlandi leggur þú inn umsókn í því sveitarfélagi sem þú býrð í. Ef þú býrð í Pituffik á Grænlandi áttur að skila inn umsókn til fjölskyldu- og heilbrigðisstofnunarinnar. Ef þú býrð á Grænlandi og sækir um lífeyri frá öðru Norðurlandi áttu að skila umsókn til fjölskyldu- og heilbrigðisstofnunarinnar.

Rétturinn til örorkulífeyris skapast þann 1. næsta mánaðar eftir að umsókn hefur verið skilað og skilyrði uppfyllt. Móttakanda örorkulífeyris ber skylda til þess að tilkynna sveitarfélaginu eða landsstjórn, eftir því sem við á, ef breytingar verða á fjárhagslegum högum hans sem geta haft þau áhrif að úthlutun þarf að endurmeta eða rétturinn fellur niður.

Einstaklingar sem frá örorkulífeyri flytjast í hóp ellilífeyrisþega án umsóknar.

 

 

Lífeyrisgreiðslur á Norðurlöndunum

Hér getur þú fundið yfirlit yfir lífeyrisgreiðslur á Norðurlöndunum.

Lesið meira um lífeyrisgreiðslur á Norðurlöndunum