Heilsa og sjúkdómar

Ef þú ert Norðurlandabúi og verður veik(ur) á meðan þú býrð eða starfar á Grænlandi, átt þú rétt á ókeypis læknishjálp og sjúkrahúsmeðhöndlun.

Læknishjálp
Þú átt að snúa þér til heilsugæslunnar/sjúkrahússins á staðnum.

Í Nuuk áttu að snúa þér til læknamiðstöðvarinnar

Tannlæknir
Þú getur snúið þér til þeirrar tannlæknastofu sem næst er.

Í einstaka bæ hefur þú möguleika á að snúa þér til sjálfstæðra tannlækna, þar sem þú greiðir sjálf(ur) reikninginn.

Ef þú verður veikur sem launþegi

Sjúkradagpeningar
Margir launþegar eiga rétt á fullum launum í veikindum, á grundvelli sameiginlegra samninga á vinnumarkaði.

Einstaklingur getur fengið vinnumarkaðsgreiðslur vegna veikinda sem leiða til óvinnufærni.

Starfsendurhæfing
Starfsendurhæfing er virkni í tengslum við vinnumarkaðinn með fjárhagslegum stuðningi sem þú sem norrænn ríkisborgari kannt að eiga rétt á ef þú býrð og starfar á Grænlandi og býrð við skerta starfsgetu. 

Vinnuslysatrygging
Það eru framlög í tengslum við vinnuslys og starfstengda sjúkdóma. Uppfylla þarf ákveðin skilyrði.

Greiðslur vegna sjúkratrygginga á Norðurlöndunum

Hér getur þú fundið yfirlit yfir greiðslur vegna sjúkratrygginga á Norðurlöndunum.

Lesið meira um greiðslur vegna sjúkratrygginga á Norðurlöndunum