Yfirlit yfir ellilífeyri og örorkulífeyri

Sérstakar reglur gagnvart Danmörku og Grænlandi

Ef þú flytur á milli Færeyja, Danmerkur og Grænlands færðu sömu stöðu og íbúar í þeim hluta ríkjasambandsins sem þú flytur til.

Það er að segja að ef þú flytur til Danmerkur eða Grænlands áttu rétt á annað hvort dönskum eða grænlenskum lífeyri, ef þú uppfyllir skilyrði um lífeyri í viðkomandi landi. Maður hefur ekki rétt á að taka færeyska lífeyrinn sinn með sér, ef maður flytur innan ríkjasambandsins. Þegar lífeyrisþegi flytur innan ríkjasambandsins er afar mikilvægt að veita athygli mismunandi lífeyrisaldri í löndunum. Þannig miðast lífeyrisaldurinn í Færeyjum t.d. við 67 ára aldur en 65 ára aldur á Grænlandi. T.d. á sá sem er 65 ára og flytur frá Grænlandi til Færeyja ekki rétt á færeyskum lífeyri fyrr en við 67 ára aldur.

Flutningur frá Færeyjum til Danmerkur

Ef þú hefur fengið úthlutað færeyskum ellilífeyri,ferðu á danskan ellilífeyri við flutning til Danmerkur. Þú þarft ekki að sækja um danskan ellilífeyri, en það þarf að tilkynna flutninginn til Almannastovan og þess danska sveitarfélags sem flutt er til.

Ef þú hefur fengið úthlutað örorkulífeyri í Færeyjum fyrir 1. janúar 2003, þ.e.a.s. áður en breytingarnar á lífeyri í Danmörku tóku gildi, færð þú örorkulífeyri í Danmörku við flutning til Danmerkur. Þú þarft ekki að sækja um þessar greiðslur í Danmörku, en það þarf að tilkynna flutninginn til Almannastovan og þess danska sveitarfélags sem flutt er til.

Ef þú hefur fengið úthlutað örorkulífeyri í Færeyjum eftir 1. janúar 2003 færð þú ekki sjálfkrafa hliðstæðan lífeyri í Danmörku. Í þessum tilvikum þarf að sækja um greiðslur í Danmörku á grundvelli gildandi reglna í Danmörku. Slíka umsókn sendir þú til þess sveitarfélags sem þú flytur til í Danmörku. Þú skalt veita því athygli að þú getur ekki sótt um örorkulífeyri í Danmörku fyrr en þú ert flutt(ur) til Danmerkur. Þess vegna þarftu að gera þér grein fyrir því, að þú gætir aðeins átt rétt á félagslegri fjárhagsaðstoð á tímabilinu frá því að þú flytur til Danmerkur og þangað til umsókn þín um örorkulífeyri hefur verið afgreidd. Þú ættir því að hafa samband við það sveitarfélag sem þú flytur til í Danmörku, til þess að fá nánari ráð og leiðbeiningar. 

Flutningur frá Danmörku til Færeyja

Ef þú hefur fengið danskan ellilífeyri, færð þú færeyskan ellilífeyri við flutning til Færeyja. Þú þarft ekki að sækja um danskan ellilífeyri en það þarf að tilkynna flutninginn til Almannastovan og þess danska sveitarfélags sem flutt er til.

Ef þú hefur fengið úthlutað örorkulífeyri í Danmörku fyrir 1. janúar 2003, þ.e.a.s. áður en breytingarnar á lífeyri í Danmörku tóku gildi, færð þú örorkulífeyri í Færeyjum við flutning til Færeyja. Þú þarft ekki að sækja um greiðslur í Færeyjum, en það þarf að tilkynna flutninginn til Almannastovan og þess færeyska sveitarfélags sem flutt er til.

Ef þú hefur fengið úthlutað örorkulífeyri í Danmörku eftir 1. janúar 2003 færðu ekki sjálfkrafa hliðstæðan lífeyri í Færeyjum. Í þessum tilvikum þarf að sækja um örorkulífeyri í Færeyjum á grundvelli gildandi reglna í Færeyjum. Slíka umsókn skal senda til Almannastovan. Þú ættir því að hafa samband við Almannastovan áður en þú flytur til þess að fá frekari ráð og leiðbeiningar.

Flutningur frá Grænlandi til Færeyja

Ef þú ert ellilífeyrisþegi eða færð örorkulífeyri og flytur frá Grænlandi til Færeyja ættir þú að hafa samband við Almannastovan til þess að fá frekari ráð og leiðbeiningar. Þú skalt þó veita því athygli að ellilífeyrisaldur í Færeyjum er 67 ára og þú munt því ekki eiga rétt á færeyskum ellilífeyri fyrr en þú verður 67 ára, jafnvel þótt þú fáir grænlenskan lífeyrir áður en þú flytur.