Yfirlit yfir ellilífeyri og örorkulífeyri

Færeyskur lífeyrir erlendis

Íbúi sem fær færeyskan ellilífeyri eða örorkulífeyri getur tekið lífeyrinn með sér við flutning til annars lands á Norðurlöndum.

Greiðslur haldast þá óbreyttar þó viðkomandi flytji. Flutning skal tilkynna til Almannastovan áður en farið er úr landi. Það skal tekið fram að greiðslur úr almennum lífeyrissjóði eru ekki greidd ef viðkomandi býr ekki í Færeyjum.

Athygli skal vakin á því að sérstakar reglur gilda varðandi ríkjasamband við Danmörku og Grænland. Reglum þessum er lýst stuttlega í næsta lið.