Yfirlit yfir ellilífeyri og örorkulífeyri
Yfirlit yfir ellilífeyri og örorkulífeyri í Færeyjum
Hér getur þú lesið meira um færeyska lífeyriskerfið, þar með talið reglur um lífeyri og hvernig réttur til lífeyris ávinnst
Almenn skilyrði fyrir ellilífeyri og örorkulífeyri
Meginreglan er sú að þú átt rétt á færeyskum ellilífeyri ef þú hefur haft fasta búsetu í Danmörku, Færeyjum eða Grænlandi í að minnsta kosti 3 ár á tímabilinu frá því þú varst 15 ára þar til þú varst 67 ára. Ef þú hefur starfað í Færeyjum í að minnsta kosti eitt ár getur verið að þú eigir rétt á færeyskum lífeyri, jafnvel þótt búseta þín í ríkjasambandinu hafi varað skemur en 3 ár. Hafðu samband við Almannastovan til þess að fá nánari leiðbeiningar ef þetta á við.
Réttur til fulls færeysks lífeyris fæst eftir 40 ára fasta búsetu í Danmörku, Færeyjum eða Grænlandi. Við skemmri búsetutíma er lífeyrinn reiknaður sem 1/40 af fullum lífeyri fyrir hvert það ár sem viðkomandi hefur haft búsetu í Danmörku, Færeyjum eða Grænlandi. Hafi maður t.d. búið í Færeyjum í 10 ár, greiðast 10/40 af fullum færeyskum lífeyri.
Lífeyririnn greiðist ekki ef hann er minni en 1/40 af grunnupphæðinni.
Föst búseta
Ráðning á færeyskt, grænlenskt eða danskt skip, vera erlendis sem fulltrúi opinbers aðila frá Færeyjum, Grænlandi eða Danmörku í tengslum við stöðu sem þjónar almannahagsmunum, starf í deild í færeysku, grænlensku eða dönsku fyrirtæki eða í dótturfyrirtæki slíks fyrirtækis eða í tengslum við nám, er sett til jafns fastri búsetu í danska ríkinu.
Tekjutenging
Bæði ellilífeyrir og örorkulífeyrir eru tekjutengdir. Þannig lækkar lífeyririnn ef tekjur þínar fara yfir ákveðið hámark.