Sjúkratryggingar
Sjúkratryggingar
Í Færeyjum þarf maður að vera aðili að sjúkrasamlagi til þess að fá almenna læknisþjónustu.
Allir sem orðnir eru 18 ára greiða fyrir aðild að sjúkrasamlaginu. Aðild er skylda fyrir alla sem búa í Færeyjum. Þegar flutt er til Færeyja þarf að tilkynna flutning til sveitarfélagsins og þá á skráning í sjúkrasamlagið sér sjálfkrafa stað. Ef ætlunin er einungis að vinna í Færeyjum - og ekki hafa búsetu þar, þarf að hafa samband við Almannastovan til þess að fá frekari upplýsingar um sjúkra- og almannatryggingar.
Starfssemi sjúkrasamlaganna felur m.a. í sér greiðslu fyrir læknisþjónustu, þar með talið aðstoð sérfræðinga, tannlæknaþjónustu, sjúkraþjálfun, niðurgreiðslur vegna lyfjakostnaðar, gleraugna og útfararaðstoð.
Í Færeyjum sjá læknar sem reka sínar eigin stofur um almenna læknaþjónustu, en þeir eru kallaðir opinberir læknar. Opinberu læknarnir sjá um almenna læknisþjónustu og ákveðin lögbundin verkefni, svo sem bólusetningar og heilbrigðisskoðanir barna og þungaðra kvenna.
Læknismeðhöndlun og heimilishjúkrun á grundvelli tilvísunar frá lækni er ókeypis.
Í Færeyjum er þunguðum konum og smábörnum boðið upp á opinbera og ókeypis heilbrigðisþjónustu. Jafnframt hefur verið komið á ókeypis skólahjúkrun. Þungaðar konur fá ókeypis fyrirbyggjandi skoðanir hjá lækni og ljósmóður og fæðingarhjálp er einnig gjaldfrjáls.
Við ákveðnar aðstæður er hægt að fá greiðslur vegna ferðakostnaðar í tengslum við veikindi.
Ef kostnaður einstaklings vegna lyfjakaupa fer yfir ákveðna upphæð, er greitt fyrir örorkuþega eða einstaklinga sem glíma við langtímaveikindi eða aldurstengda sjúkdóma.
Í Færeyjum eru einkareknar almennar tannlæknastofur og það á líka við um sérfræðinga á sviði tannlækninga. Tannlækningar barna og ungmenna undir 16 ára aldri eru ókeypis. Aðrir fá greiðslur í tengslum við tannlæknakostnað.
Sjúkrahúsvist er ókeypis í Færeyjum.
Frekari upplýsingar um greiðslur vegna heilbrigðisþjónustu veitir Landssamband sjúkrasamlaga Meginfelag Sjukrakassa Føroya
.