Greiðslur til fjölskyldna

Greiðast frá landinu þar sem faðir eða móðir barnsins er tryggt í almannatryggingum (tilheyra almannatryggingakerfi).

Fjölskyldan flytur

Ef fjölskylda með börn flytur til annars norræns lands heyra fjölskyldumeðlimirnir undir almannatryggingar í nýja búsetulandinu og öðlast rétt til fjölskyldu- og foreldragreiðslna samkvæmt lögum nýja búsetulandsins.

Unnið í einu norrænu landi á meðan fjölskyldan býr í öðru norrænu landi

Landinu sem unnið er í ber að inna af hendi greiðslur til fjölskyldunnar, þ.e.a.s. landið þar sem hinn vinnandi er tryggður (í almannatryggingum). Ef samsvarandi greiðslur eru hærri í búsetulandinu á búsetulandið að greiða mismuninn. Fjölskyldan fær þar með heildarupphæð sem svarar til hærri upphæðarinnar.

Foreldrarnir vinna hvort í sínu landinu og búa í öðru þeirra

Vinnulandið þar sem fjölskyldan býr, á að greiða fjölskyldugreiðslurnar.. Hitt vinnulandið á að greiða út mismuninn ef fjölskyldugreiðslur þess eru hærri. Fjölskyldan fær þar samtals upphæð sem samsvarar hærri fjölskyldugreiðslunni.

Greiðslur til fjölskyldna og foreldra geta verið breytilegar á milli Norðurlandanna

Það gildir bæði um upphæðir og hvers konar greiðslur hægt er að fá.  Leitið nánari upplýsinga um fjölskyldugreiðslur í hverju Norðurlandanna fyrir sig