Veikindi
Veikindi
Ef þú veikist eða slasast á meðan þú býrð eða starfar í Danmörku áttu rétt á læknisaðstoð og sjúkrahúsmeðhöndlun og grundvallarreglan er sú að það sé þér að kostnaðarlausu.
Þetta skýrist af því að heilbrigðiskerfið í Danmörku er fyrst og fremst opinbert og fjármagnað með sköttum. Þú verður að vera búsett(ur) í Danmörku og hafa sjúkratryggingaskírteini frá því sveitarfélagi sem þú hefur lögheimili í. Ef þú hefur ekki fasta búsetu í Danmörku, skaltu snúa þér til þess sveitarfélags þar sem þú starfar, þ.e.a.s. þar sem vinnuveitandi þinn er skráður, til þess að fá útgefið sérstakt heilbrigðiskort, sem staðfestir rétt þinn til opinberrar heilbrigðisþjónustu.
Ef þú veikist á meðan þú býrð og/eða vinnur í Danmörku
Læknismeðferð
Þú þarft að velja tryggingarleið 1 eða 2 hjá sveitarfélaginu þínu og lækni, sem mun vera heimilislæknirinn þinn ef þú velur leið 1. Meðhöndlunin hjá heimilislækninum þínum er þér að kostnaðarlausu og þessi læknir getur vísað þér til sérfræðinga, sjúkraþjálfara, meðferðar á sjúkrahúsi o.þ.h. Í bráðatilvikum, utan almenns viðtalstíma læknisins, getur þú haft samband við læknavaktina eða farið á slysavarðstofuna sem tengist sjúkrahúsinu á staðnum. Ef þú þarft á sjúkrabifreið að halda vegna alvarlegs slyss áttu að hringja í 112.
Þú getur líka valið tryggingarleið 2.
Tannlæknir
Þú velur sjálf(ur) tannlækninn þinn. Opinberar niðurgreiðslur vegna ákveðinna fyrirbyggjandi skoðana eru dregnar frá tannlæknareikningnum þínum.
Sjúkraþjálfun
Ef þú hefur þörf fyrir sjúkraþjálfun getur þú sjálf(ur) haft samband við sjúkraþjálfara eða við lækninn þinn, sem lætur þig fá tilvísun á sjúkraþjálfara. Ef þú færð tilvísun frá lækninum þínum er greiðslan til sjúkraþjálfarans niðurgreidd, en ef þú hefur ekki tilvísun greiðir þú allan reikninginn.
Ef þú ert á vinnumarkaði og veikist
Sjúkradagpeningar
Ef þú ert norræn ríkisborgari og starfar í Danmörku, áttu rétt á sjúkradagpeningum ef þú uppfyllir skilyrði í lögum. Sjúkradagpeningar greiðast í grunninn sem fjárhagslegar bætur vegna tekjumissis á meðan þú ert óvinnufær vegna veikinda. Launþegar, sjálfstæðir atvinnurekendur og atvinnulausir eiga þess kost að fá greidda sjúkradagpeninga. Það getur verið nauðsynlegt að leggja fram læknisvottorð til þess að staðfesta að þú sért óvinnufær vegna eigin veikinda.
Viltu spyrja einhvers?
Ef þú vilt spyrja einhvers getur þú haft samband við heimasveitarfélag þitt, eða það sveitarfélag sem vinnuveitandi þinn er skráður í, ef þú hefur ekki fasta búsetu í Danmörku.
Endurhæfing
Endurhæfing er vinnutengd starfsemi með fjárhagslegum stuðningi. Þú getur sem norrænn ríkisborgari átt rétt á endurhæfingu, ef þú býrð og starfar í Danmörku og hefur takmarkaða starfsgetu og uppfyllir skilyrði í lögum.
Vinnuslysatrygging
Ef þú ert norrænn ríkisborgari og slasast við vinnu í Danmörku getur þú og fjölskylda þín (börn og maki) átt rétt á greiðslum, ef skilyrði í lögum eru uppfyllt.