Börn og fjölskylda

Fjölskyldugreiðslur

Ef þú býrð og/eða vinnur í Danmörku og ert með fjölskyldu

Barnabætur

Barnabætur eru fjárhagslegur stuðningur sem greiddur er ársfjórðungslega til fjölskyldna með börn undir 18 ára aldri. Ef dönsk lög gilda um þig sem norrænan ríkisborgara, getur þú átt rétt á að fá þessar greiðslur, jafnvel þó barnið þitt eða þú hafir ekki fasta búsetu í Danmörku, að uppfylltum skilyrðum laga um greiðslu barnabóta.

Sérstakar barnabætur

Sérstakar barnabætur eru fjárhagslegur stuðningur við sérstakar aðstæður (einstæðir, lífeyrisþegar, eftirlifendur, námsmenn o.fl.) Ef dönsk lög gilda um þig sem norrænan ríkisborgara, getur þú átt rétt á því að fá sérstakar barnabætur, jafnvel þó barnið þitt eða þú hafir ekki fasta búsetu í Danmörku, að uppfylltum skilyrðum laga um greiðslu barnabóta.

Fæðingar- og ættleiðingardagpeningar

Fæðingardagpeningar eru fjárhagslegar bætur vegna tekjutaps á meðan þú ert frá vinnu vegna meðgöngu, fæðingar eða ættleiðingar. Launþegar, sjálfstæðir atvinnurekendur og atvinnulausir eiga rétt á því að fá greidda fæðingardagpeninga. Ef dönsk lög gilda um þig sem norrænan ríkisborgara, áttu rétt á að fá greidda fæðingar- og ættleiðingardagpeninga, jafnvel þó þú hafir ekki fasta búsetu í Danmörku. Þú verður þó að uppfylla skilyrði laga um útborgun fæðingar- og ættleiðingardagpeninga.

Fjölskyldugreiðslur á Norðurlöndunum

Hér getur þú fundið yfirlit yfir fjölskyldugreiðslur á Norðurlöndunum.

Fjölskyldugreiðslur á Norðurlöndunum